Um KRST lögmannsstofu

 

Frá árinu 1975 hefur Kristján Stefánsson rekið lögmannsstofu. Upphaflega var skrifstofan að Ránargötu en fluttist síðan í miðbæ Reykjavíkur og er nú í Austurstræti 10a.

 

Frá upphafi hefur Kristján haldið sameiginlega skrifstofu með Hilmari Ingimundarsyni hæstaréttarlögmanni. Árið 2006 útskrifaðist Stefán Karl, sonur Kristjáns, úr lagadeild Háskóla Íslands og hóf samstundis störf á skrifstofunni. Þremur árum síðar var röðin komin að Páli, næst elsta syni Kristjáns að útskrifast og hann var ekki lengi að koma sér fyrir á skrifstofunni ásamt föður sínum og bróður.

 

Skrifstofa Kristjáns hefur gengið undir nafninu Lögmenn Austurstræti en hefur verið rekin undir nafninu Kr.St. lögmannsstofa ehf.

 

Í byrjun mars 2010 opnaði stofan útibú á Egilsstöðum. Þar starfar Stefán Bogi Sveinsson, héraðs- dómslögmaður.

 

Lögmenn stofunnar hafa markað sér þá sérstöðu að skapa þægilegt umhverfi fyrir sérhvern skjólstæðing sem getur gengið því vísu að fá persónulega þjónustu byggða á reynslu og þekkingu.

 

Stjórn Kr.St. lögmannsstofu ehf..

Kristján Stefánsson, hrl.

 

Kennitala

71.12.04-2960

Reikningsnúmer

0306-26-303

Vsk. númer

85672

Póstfang

KRST

Austurstræti 10a

101 Reykjavík

Ísland